Director
Anton Ingi Sigurðsson
Duration
96 mín
Release Date
23. Feb 2018
Writers
Anton Ingi Sigurðsson
Country
Ísland
Myndin fjallar um fjóra menn sem ræna banka til að eiga fyrir tugmilljóna skuldum eins þeirra við hættulegasta mann Íslands og fer þá af stað ótrúleg atburðarás sem enginn sá fyrir.
Þó að aðalleikarar myndarinnar séu flestum landsmönnum góðkunnir, og þá sérstaklega snjallsímakynslóðinni, þá er þetta frumraun þeirra flestra á hvíta tjaldinu. Hjálmar Örn Jóhannsson, snappari og skemmtikraftur, fer með aðalhlutverk myndarinnar en í stærstu hlutverkunum auk hans eru Aron Már Ólafsson (Aron Mola) og Áttu-mennirnir Egill Ploder Ottósson og Nökkvi Fjalar Orrason. Allir eiga þeir það sameiginlegt að vera meðal vinsælustu Íslendinganna á Snapchat.