Leikstjórn
Bragi Thor Hinriksson
Lengd
1 kls og 25 mín
Frumsýnd
5. nóv 2021
Handrit
Helga Arnardóttir
Land
Ísland
Birta er bráðfyndin og hjartfólgin saga um íslenskan raunveruleika sem margir þekkja og tengja við. Sagan gerist í neðra Breiðholti og fjallar um Birtu Bjarkadóttur sem er 11 ára og alin upp hjá einstæðri móður. Móðir hennar vinnur myrkranna á milli til að láta enda ná saman en fyrir slysni heyrir Birta móður sína segja í símann að hún hafi ekki efni á að halda jól. Móðir Birtu, sem er hjúkrunarfræðingur, segir að hún þurfi allavega 100.000 krónur til þess að geta haldið mannsæmandi jól fyrir sig og dæturnar tvær. Birta tekur þessum fréttum bókstaflega og ákveður að reyna bjarga jólunum fyrir mömmu og litlu systur sína Kötu sem er sex ára. Birta kemst þó fljótlega að því að það er heilmikið mál að vera 11 ára og reyna að þéna peninga.