Leikstjórn
David Leitch
Lengd
119
Frumsýnd
16. maí 2018
Handrit
Rob Liefeld (character), Fabian Nicieza (character), Rhett Reese (screenplay), Paul Wernick (screenplay)
Land
USA
Eftir að hafa naumlega komist lífs af í kjölfar nautgripaárásar á afmyndaður kokkur (Wade Wilson) ekki sjö dagana sæla. Hann horfist í augu við það að stóri draumur hans að verða heitasti barþjónninn í bænum rætist líklega aldrei á meðan hann venst þeim leiðindum að hafa misst allt bragðskyn.
Þá hefst leitin að notuðum fléttiþétti ásamt nýjum leiðum til þess að krydda upp á tilveruna, en í miðri för neyðist greyið maðurinn til þess að takast á við hversdagslegar hindranir eins og uppáþrengjandi ninjur, yakuza-mafíuna og hóp kynóðra rakka.
Ferðalag lítilmagnans kennir honum lexíu um gildi vináttu, mikilvægi fjölskyldubanda og bragðtegunda, en aldrei er að vita nema þetta safaríka ævintýri veiti honum titilinn Heimsins besti elskhugi, eða að minnsta kosti flottan kaffibolla með þeirri áletrun.