


Leikstjórn
Anders Thomas Jensen
Lengd
110 mín
Frumsýnd
30. okt 2025
Handrit
Anders Thomas Jensen
Land
Danmörk
Anker er látinn laus úr fangelsi eftir að hafa afplánað fjórtán ára dóm fyrir rán. Bróðir Ankers, Manfred, er sá eini sem veit hvar peningarnir úr ráninu eru. Á meðan dvöl Ankers í fangelsinu stóð, þróaði Manfred með sér geðsjúkdóm sem veldur því að hann gleymir hvar ránsfengurinn er geymdur. Saman leggja bræðurnir nú upp í óvænta ferð til að finna peningana og uppgötva hverjir þeir í raun eru.
Myndin er sýnd með dönsku tali og íslenskum texta.