Leikstjórn
James Mangold
Frumsýnd
15. nóv 2019
Handrit
Jez Butterworth, John-Henry Butterworth
Land
USA
Ford v Ferrari er sönn saga um samstarf kappakstursmannsins Kens Miles og bílasmiðsins og frumkvöðulsins Carrolls Shelby sem árið 1966 fengu 90 daga til að setja saman bíl hjá Ford-verksmiðjunum sem gæti sigrað Ferrari í Le Mans-kappakstrinum, en Ferrari-bifreiðar báru á þessum tíma höfuð og herðar yfir aðra kappakstursbíla. Þótt hinn sólarhringslangi Le Mans-kappakstur sem fram fór 18.–19. júní 1966 sé hápunktur þessarar myndar er sjónum hér fyrst og fremst beint að þeim félögum Ken Miles og Carroll Shelby sem voru gerólíkir að upplagi en áttu kappakstursáhugann sameiginlegan.