Leikstjórn
Anton Ingi Sigurðsson
Lengd
96 mín
Frumsýnd
23. feb 2018
Handrit
Anton Ingi Sigurðsson
Land
Ísland
Fullir Vasar er nýjasta mynd leikstjórans og handritshöfund- arins Antons Sigurðssonar og fjallar um fjóra menn sem ræna banka til að eiga fyrir tugmilljóna skuldum eins þeirra við hættulegasta mann Íslands í kjölfar þess fer í gang atburðarás sem enginn hefði getað séð fyrir.
Hér er á ferðinni gamanmynd með spennuívafi og söguþræði sem kemur skemmtilega á óvart. Hjálmar Örn Jóhannesson leikur hinn frekar misheppnaða (Arnar Thor) sem hefur komið sér í tug milljóna króna skuld við hættulegasta mann Íslands sem (Gulli bílasali – leikinn af Ladda). Til að bjarga sér út úr klípunni fær hann til liðs við sig þrjá menn til að ræna bankann, grímuklæddir og vopnaðir. Hvað gæti farið úrskeiðis?
Með hlutverk fjórmenninganna í myndinni fyrir utan Hjálmar fara þeir Aron Már Ólafsson (Aron Mola) og Áttu-mennirnir Egill Ploder Ottósson og Nökkvi Fjalar Orrason. Þeir félagar hafa lítið leikið áður en eiga það sameiginlegt að hafa gert það gott á Snapchat þar sem þeir hafa notið mikilla vinsælda.