Lengd
135 mínútur
Frumsýnd
5. des 2017
Jólagjafir ungrar stúlku leiða hana inn í ótrúlegt jólaævintýri í þessu dásamlega klassíska ballettverki þar sem dansað er við stórfenglega tónlist Tsjaíkovskíjs.
Jólanótt er gengin í garð og galdramaður að nafni Drosselmeyer tekur hina ungu Clöru í ævintýralegt ferðalag þar sem tíminn stendur kyrr og stofan verður að stórum orrustuvelli. Á ferð þeirra fara þau gegnum snjólendi alla leið til konungsríkis sem kennir sig við sætindi. Ljúfar nótur Tsjaíkovskíjs í bland við heillandi túlkun Konunglega ballettsins á ævintýrinu tendrar hreina og tæra jólagleði í hjörtum áhorfenda.
+ Lesa meiraUppsetning Peter Wrights á Hnotubrjótinum er ein vinsælasta útgáfa verksins og er hún reglulega sýnd af Konunglegu óperunni í London. Hún þykir afar hátíðleg þar sem snjókornin dansa sporin eftir Lev Ivanov við heillandi og sykursæta tónlist Tsjaíkovskíjs sem mörgum þykir ómissandi partur af hátíðarhöldunum.
Verkið er um það bil 2 klukkustundir og 15 mínútur að lengd með einu hléi.
Danshöfundur – PETER WRIGHT (eftir LEV IVANOV)
Tónlist – PJOTR TSJAÍKOVSKÍJ