Leikstjórn
Taika Waititi
Frumsýnd
3. jan 2020
Handrit
Taika Waititi
Land
USA
Jojo er tíu ára drengur í ungliðahreyfingu Adolfs Hitlers, svonefndri Hitlersæsku, þar sem ungdóminum er m.a. kennt að meðhöndla vopn og að gyðingar séu rót alls ills. Þegar Jojo, sem á sér ímyndaðan vin að nafni Adolf, uppgötvar dag einn að móðir hans hefur falið gyðingastelpu í húsi þeirra neyðist hann til að endurmeta allt sem hann hefur lært um nasisma.
Myndin hlaut áhorfendaverðlaunin á Toronto-kvikmyndahátíðinni og verðlaun bæði bandarísku kvikmyndastofnunarinnar (AFI) og samtaka bandarískra gagnrýnenda sem ein af tíu bestu myndum ársins. Myndin er tilnefnd til tvennra Golden Globe-verðlauna, sem besta mynd ársins.