Leikstjórn
Martin McDonagh
Lengd
115 min
Frumsýnd
19. jan 2018
Handrit
Martin McDonagh
Land
UK, USA
Dómar
8.5/10 | Internet Movie Database |
93% | Rotten Tomatoes |
87/100 | Metacritic |
93% | Rotten Tomatoes |
87/100 | Metacritic |
Three Billboards Outside Ebbing, Missouri er kolsvart gamandrama frá Óskarsverðlaunahafanum Martin McDonagh (In Bruges). Hér segir frá Mildred Hayes (Frances McDormand), fráskilinni móður sem hefur ekki enn jafnað sig á hrottalegu morði sextán ára dóttur sinnar. Sjö mánuðir eru nú liðnir síðan atvikið átti sér stað og hafa ekki enn fundist neinar ábendingar eða sannanir um afbrotamann.
Mildred er orðin langþreytt á aðgerðarleysi lögreglunnar í smábænum Ebbing í Missouri, þannig að hún tekur djarfa ákvörðun og stillir upp þremur skiltum við bæjarmörkin, með umdeildum skilaboðum handa lögreglustjóranum William Willoughby (Woody Harrelson). Lögreglumennirnir kunna ekki við það að láta hafa sig að fíflum og brátt fer spennan að magnast upp á milli Mildred og yfirvaldsins, með léttgeggjaðri en sömuleiðis átakanlegri útkomu.
Með önnur hlutverk fara Sam Rockwell, John Hawkes, Peter Dinklage og Abbie Cornish.
Myndin er hlaut 4 Golden Globe verðlaun, fyrir bestu mynd, bestu leikkonu í aðalhlutverki (McDormand), besta leikara í aukahlutverki (Rockwell) og besta handrit.