Back arrow

Þriðji póllinn

Leikstjórn

Andri Snær Magnason, Anní Ólafsdóttir

Frumsýnd

25. sep 2020

Land

Ísland

Leikstjórn

Andri Snær Magnason, Anní Ólafsdóttir

Frumsýnd

25. sep 2020

Land

Ísland

Þriðji Póllinn er  íslensk kvikmynd í fullri lengd, heimildarmynd um geðhvörf með söngvum og fílum. Söguhetjur eru Högni Egilsson, tónlistarmaður, og Anna Tara Edwards, íslensk kona sem ólst upp í frumskógum Nepals innan um tígrisdýr og nashyrninga.  

Anna Tara veiktist af geðhvörfum upp úr tvítugu og missti móður sína úr sama sjúkdómi. Hún lifði í skugga veikindanna um árabil, en þegar Högni Egilsson steig fram með sína sögu ákvað hún að feta sömu leið, skora skömmina á hólm og efna til tónleika til vitundarvakningar um geðsjúkdóma í Kathmandu, höfuðborg Nepals. Hún fékk Högna til að spila á tónleikunum og fyrir ágóðann var opnuð hjálparlína fyrir fólk í sjálfsvígshugleiðingum í Nepal. 

Þriðji Póllinn fylgir Önnu Töru og Högna um framandi slóðir í aðdraganda tónleikanna. Við heyrum þeirra hliðar á sjúkdómnum; um hæðirnar og hinar miklu lægðir og leitina að jafnvægi. Þriðji Póllinn er ekki hefðbundin fræðslumynd heldur innsýn í hugsun og veruleika tveggja einstaklinga sem hafa glímt við sama sjúkdóm. Þetta er ferðasaga, mynd um óvænta vináttu og hreinskilin og opin umræða um hvað það þýðir að vera með geðsjúkdóm, og vera aðstandandi. Sögur þeirra lýsa bæði alvarleika sjúkdómsins, en einnig sigrum, og gefa umfram allt von. 

Leikstjórn

Andri Snær Magnason, Anní Ólafsdóttir

Frumsýnd

25. sep 2020

Land

Ísland

Aðalhlutverk

  • Högni Egilsson
  • Anna Tara Edwards